Fara í efni

Hugleiðing um heiminn frá Guðna á mánudegi

Hugleiðing um heiminn frá Guðna á mánudegi

Mikilvægasta spurningin sem manneskja getur spurt sig er þessi: „Er heimurinn vingjarnlegur eða fjandsamlegur?“

Ofangreind speki er eignuð Albert Einstein í ýmsum útgáfum á fjölmörgum heimasíðum, en við nánari athugun virðist það ekki alveg rétt. En í okkar samhengi skiptir heldur engu máli hvort þessi mikilvægu orð komu frá Einstein eða ekki. Spekin hefur jafn mikið gildi – spurningin er jafn knýjandi:

„Lítur þú á heiminn sem vingjarnlegan eða fjandsamlegan?“

Hverju trúir þú um heiminn? Er hann fjandsamlegur eða vingjarnlegur? Sérðu glas sem er hálffullt eða glas sem er hálftómt? Eða sérðu og skilur að glasið er alltaf yfirfullt?