Fara í efni

Í blíðu og stríðu - hugleiðing dagsins frá Guðna

Í blíðu og stríðu - hugleiðing dagsins frá Guðna

En ...
En ...
„En ... hvað ef?“ segir skortdýrið og bendir á reynslubankann sinn – því skortdýrið lúrir á reynslubankanum og notar eftirsjána til að viðhalda sér. „Hvað með efann?“ segir dýrið og það getur virkað mjög sannfærandi.

En þegar þú hefur fengið smjörþefinn af frelsinu og friðinum sem fylgir því að skilja að þú ert ljós og að ábyrgðin er þín og tilgangurinn er þinn – þá skilurðu að öll þessi „en“ eru aðeins leiðir skortsins til að viðhalda blekkingunni. Blekkingin hrynur þegar við hlustum á hjartað – þegar við veljum að hætta að verja orkunni til að halda henni uppi.

Finndu orkuna sem sparast þegar þú heldur ekki uppi flókinni blekkingu.
Heitbindingin er kjarni þess að vera í vitund. Þegar ég vil ekki mæta til fulls þá er ég alltaf með hálfkák – alltaf að skammta umhverfi mínu og eigin tilvist tiltekna velsæld. Og þar með vansæld.

Heitbindingin er að vera kominn inn á sama svið og skaparinn – sama svið og hjartað.

Heitbindingin merkir að við erum lofuð – sjálfum okkur, til fulls, í blíðu og stríðu, liggjandi og fljúgandi, fullkomin og máttug.
Heitbindingin er að tjá heiminum hver við erum og hvað við viljum.