Jólaball AO og Seliak- og glútenóþolssamtök Íslands verður haldið sunnudaginn 14. desember n.k
Við erum ánægð með að geta sagt frá því að Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) & Seliak- og glútenóþolssamtök Íslands ætla að halda jólaball saman sunnudaginn 14. desember kl .15 - 17.
Jólaball
Við erum ánægð með að geta sagt frá því að Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) & Seliak- og glútenóþolssamtök Íslands ætla að halda jólaball saman Sunnudaginn 14 desember kl .15 - 17.
SÍBS hljómsveitin mun spila og jólasveinn sem er sérstaklega skilningsríkur í garð barna sem glíma við fæðuofnæmi eða fæðuóþol kemur í heimsókn J
Allir eru velkomnir!
Þetta er fyrsta jólaballið okkar og við vonumst til þess að sjá sem flesta. Það kostar ekkert inn fyrir félagsmenn AO og Seliak- og glútenóþols-samtakanna. Aðeins 500 kr fyrir aðra.
Skráning er á ao@ao.is þar sem gefa þarf upp nafn og fjölda þeirra sem ætla að mæta.
Jólakveðja,
Stjórnir Astma- og ofnæmisfélags Íslands & Seliak- og glútenóþolssamtaka Íslands.