Kjóstu langhlaupara ársins 2013
Í fimmta skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins. Veitt verða vegleg verðlaun fyrir sigurvegara og alla þá sem tilnefndir verða.
Allir sem taka þátt í kosningunni eiga möguleika að á vinna hlaupaskó í útdráttarverðlaun. Í ár eins og áður, verða valdir bestu langhlauparar ársins 2013 bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum.
Samtals bárust 32 tilnefningar í karla- og kvennaflokki til langhlaupara ársins 2013. Að þessu sinni eru það 7 konur og 7 karlar sem mynda endanlegan lista hlaupara sem kjósa á um. Það val var ekki auðvelt frekar en áður, því margir af þeim hlaupurum sem tilnefndir voru, hafa hver á sinn hátt unnið góð afrek og/eða sýnt mikla þrautseigju á árinu sem er að líða.
Eftirfarandi hlauparar eru tilnefndir (nánari upplýsingar á hlaup.is):
Í kvennaflokki (í stafrófsröð):
Arndís Ýr Hafþórsdóttir
Ebba Særún Brynjarsdóttir
Elísabet Margeirsdóttir
Helen Ólafsdóttir
María Kristín Gröndal
Martha Ernstsdóttir
Signý Einarsdóttir
Í karlaflokki (í stafrófsröð):
Arnar Pétursson
Ármann Eydal Albertsson
Friðleifur K. Friðleifsson
Kári Steinn Karlsson
Stefán Gíslason
Stefán Guðmundsson
Þorbergur Ingi Jónsson
Fara á innskráningarsíðu fyrir kosninguna.
Þú getur kosið til kl. 24 miðvikudaginn 22. janúar. Verðlaunaafhending verður laugardaginn 25. janúar næstkomandi og niðurstaðan kynnt í framhaldi af því á hlaup.is.