KÓRÍANDER ÝSA MEÐ SALSAHRÍSGRJÓNUM OG PISTASÍUHNETUM
Dásamlegur fiskréttur.
KÓRÍANDERÝSA
Það er alltaf tilefni til þess að hafa fisk í matinn.
Skelltu í þennan rétt þegar þig langar í fisk á þinn disk.
Salsa:
- 350 g hýðishrísgrjón700 ml vatn
- 2 stk rauð greipaldin,
- afhýdd og skorin í bita
- 1 stk mangó, afhýtt, steinhreinsað og skorið í bita
- 1 stk granatepli
- 1/3 stk rautt chili-aldin, fræhreinsað og smátt saxað
- safi úr 1 límónu
- 2–3 stk vorlaukar, saxaðir
Ýsa:
- 1,2 kg ýsa, beinhreinsuð og roðflett
- 1–2 msk ólífuolía
- salt
Kóríanderolía:
- 1 handfylli af fersku kóríander
- 1 dl ólífuolía
- ½ tsk salt
Sjóðið hýðishrísgrjónin samkvæmt pakkningu og kælið stutta stund.
Blandið ávöxtunum saman við ásamt chili-aldininu, vorlauknum og safanum úr límónunni.
Hitið ofninn í 180°C. Setjið smjörpappír á bökunarplötu og hellið ólífuolíunni ofan á.
Skerið fiskinn í bita og raðið á plötuna. Stráið örlitlu af saltflögum yfir og bakið í 7 mínútur, örlítið lengur ef sneiðarnar eru þykkar.
Vinnið saman kóríander og ólífuolíu í matvinnsluvél og saltið.
Setjið salsahrísgrjónin á disk og leggið fiskstykki yfir. Hellið u.þ.b. 1 msk af kóríanderolíu yfir og stráið að lokum muldum pistasíuhnetum yfir.
Njótið vel!