Fara í efni

Kraftaverk kemur ekki alltaf með hvínandi leiftri segir Guðni í dag

hugleiðing á þriðjudegi~
hugleiðing á þriðjudegi~

Þú þekkir söng hjartans.

Þetta er kjarni málsins. Við höfum grun um hurð.

Í okkur öllum býr hurð og á bak við hana er ljósið. Fyrst höfum við ekki hugmynd um hurðina. Svo fréttum við af henni, eða okkur fer að renna í grun að það hljóti að vera svona hurð til staðar.Svo fer að grilla í hurðina í gegnum þokuna og rykið og myrkrið. Við sjáum hana.

Við veltum því fyrir okkur í dágóðan tíma hvort við trúum áhurðina og hvort eitthvað gott leynist þar á bak við. Hugsanlega teljum við okkur trú um að ef hurðin er til staðar sé hún ekki ætluð okkur, heldur hinum manneskjunum – einhverjum öðrum en okkur, einhverjum sem á það meira skilið, einhverjum sem er ekki svona hræðilega ófullkominn eins og við.

En þeir sem vilja uppljómast; þeir sem eru lausir undan álögum skortdýrsins; þeir sem skilja að þeir hafa frjálsan vilja og geta valið eigin viðbrögð og örlög; þeir sem trúa á eigin mátt og eigið ljós svipta upp hurðinni í fullum mætti og baða sig í ljósinu. Kraftaverk.

Hjartaverk.
Kraftaverk kemur ekki alltaf með hvínandi leiftri. Oftast sígur það inn smátt og smátt, þannig að sá sem upplifir kraftaverk í lífi sínu vaknar upp einn daginn og er kominn nær sjálfum sér.