Litabækur til að þjálfa fínhreyfingar
Litabækur hafa verið vinsælar síðustu misserin og eru til margra hluta nytsamlegar. Lifðu núna var bent á að það væri upplagt að lita, til að þjálfa fínhreyfingar sem eru farnar að stirðna.
Litabækur hafa verið vinsælar síðustu misserin og eru til margra hluta nytsamlegar.
Lifðu núna var bent á að það væri upplagt að lita, til að þjálfa fínhreyfingar sem eru farnar að stirðna.
Rósa Hauksdóttir sem veitir forstöðu Iðjuþjálfuninni á Landakoti var spurð álits á þessu. Hún sagði að það væri almennt þannig, að það sem væri ekki notað, því færi aftur. Það að nota hugann og hendurnar héldi lengur við færni fólks, miðað við það að menn settust niður með hendur í skauti.
Ákveðin þjálfun að spila bingó
Hún sagði að það væru til alls kyns þrautir til að þjálfa hugann, en litabækur væru ekki notaðar í iðjuþjálfuninni á Landakoti. Það kæmi þó fyrir að menn kæmu þangað með eigin litabækur til að æfa sig í að lita. . . LESA MEIRA