Fara í efni

Ljós bara er, það bara skín - hugleiðing frá Guðna

Hugleiðing dagsins.
Ljós bara er, það bara skín - hugleiðing frá Guðna

Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar.

Ljós bara er, það bara skín, það bara veitir orku sinni í hvaðeina sem er til í að taka við henni.

Ljósið skín ekki fyrir móttakandann, það skín ekki til að láta eitthvað vaxa og dafna; ljósið skín af því að það er eðli þess og óumbreytanlegur sannleikur – að skína er tilgangur ljóssins.