Nýrnasjúkdómar
Hver einstaklingur fæðist yfirleitt með tvö nýru, það er samt vitað að eitt nýra dugar til að sinna þeirri starfsemi sem nauðsynleg er. Þau liggja baklægt í kviðarholi, umvafin fituvef og eru varin af hrygg og neðstu rifbeinum. Hægra nýra liggur aðeins neðar en það vinstra. Nýrun eru um það bil 150 gr hvort um sig. Frá hvoru nýra liggur þvagleiðari niður í þvagblöðru og frá þvagblöðru liggur þvagrás út úr líkamanum.
Gerð nýrnanna:
Börkur – ytri hluti.
Mergur – innri hluti.
Mergurinn tengist nýrnaskjóðu en þaðan rennur fullmyndað þvag í þvagpípu. Í hvoru nýra eru rúmlega milljón nýrungar en það eru starfseiningar nýrna. Nýrnaslagæð liggur til nýrna og grein frá henni liggur til hvers nýrungs. Æðar frá nýrungum sameinast svo aftur í nýrnabláæð.
– ytri hluti.– innri hluti. tengist en þaðan rennur fullmyndað þvag í þvagpípu. Í hvoru nýra eru rúmlega milljón nýrungar en það eru starfseiningar nýrna. Nýrnaslagæð liggur til nýrna og grein frá henni liggur til hvers nýrungs. Æðar frá nýrungum sameinast svo aftur í nýrnabláæð.
Síun fer fram í gauklinum (e. glomerulus) sem samanstendur af háræðahnykli sem liggur milli aðfærandi og fráfærandi slagæðlinga og er gaukulinn umlukinn Bowmans hylki. Æðaþel gaukulsins er mjög gegndræpt og hleypir vökva, söltum og litlum próteinum í gegnum sig.
Nýrun sía um 180 lítra af frumþvagi á dag og er mestur hluti þess enduruppsoginn í píplunum, þannig að endanlegur þvagútskilnaður verður aðeins um 2 lítrar á dag.
Nýrnabilun (e. uremia) er sjúkdómsástand þegar nýrun geta ekki sinnt hlutverki sínu og líkaminn losnar ekki við umframvökva og úrgangsefni og langvinnum nýrnasjúkdómi er skipt í fimm stig eftir starfshæfni nýrna. Stig 1 er skilgreint sem eðlilegur gaukulsíunarhraði (GSH) eða yfir 90 ml/mín./1,73 m2. Stig 5 telst vera lokastigsnýrnabilun, en þá er GSH kominn niður fyrir 15 ml/mín./1,73 m2.
Einkenni nýrnabilunar eru auk minnkaðs þvagútskilnaðar, háþrýstingur, bjúgur, kláði, blóðleysi, ógleði, uppköst, höfuðverkur, skjálfti, rugl, krampar, skert meðvitund og dauði ef ekkert er að gert.
Nýgengi nýrnabilunar á lokastigi hefur aukist jafnt og þétt um allan heim á undanförnum áratugum. Meðferð langvinns nýrnasjúkdóms beinist því einkum að því að seinka eða koma í veg fyrir hnignun á nýrnastarfsemi og þar með að langvinnur nýrnasjúkdómur fari yfir í lokastigsnýrnabilun.
Algengustu orsakir lokastigsnýrnabilunar á Íslandi eru gauklabólga (e. glomerulonephritis) og langvinn millivefsnýrnabólga. Aðrar algengustu orsakir lokastigsnýrnabilunar eru arfgengur blöðrunýrnasjúkdómur, hækkaður blóðþrýstingur, sykursýki og nýrnaæðasjúkdómur. Þá geta sýkingar og lyf valdið nýrnaskemmdum og jafnvel nýrnabilun.
Hér eru fleiri áhugaverðar upplýsingar um nýrun
Heimild: landspitali.is