Ömmu Engifer gos frá Heilsumömmunni
Eru ekki allir búnir að fá nóg af Malti og appelsíni undanfarnar vikur ?
Eru ekki allir búnir að fá nóg af Malti og appelsíni undanfarnar vikur ?
Mig langaði að deila með ykkur uppáhalds helgar gosinu okkar.
Það var tengdamamma sem kom okkur upp á þetta í einhverri sumarbústaðarferðinni í sumar og síðan þá er það kallað ömmu-gos.
Aðferðin er einföld, Engifersafi og Kristall, blandað til helminga eða eftir smekk, sumir vilja meira sódavatn en aðrir meiri safa en minna sódavatn. Prófið ykkur bara áfram.
Ótrúlega frískandi og gott.
Skora á ykkur að prufa um helgina.
Kveðja Heilsumamman