Tannverndarvika 2015 – Sjaldan sætindi og í litlu magni
Embætti landlæknis stendur fyrir árlegri tannverndarviku 2. til 7. febrúar 2015 í samstarfi við Tannlæknafélag Íslands.
Tannverndarvikan þetta árið er helguð því að kynna landsmönnum mikilvægi þess að draga úr sykurneyslu undir kjörorðinu Sjaldan sætindi og í litlu magni.
Að þessu tilefni kynnir Embætti landlæknis nýjan vef, www.sykurmagn.is, sem verður opnaður formlega í upphafi Tannverndarviku, 2. febrúar 2015. Á vefnum er að finna myndrænar upplýsingar um viðbættan sykur í ýmsum matvælum, einkum sætindum og sykruðum gos- og svaladrykkjum.
Með hjálp vefsins geta foreldrar hjálpað börnum sínum að læra að velja æskilegar vörur með minna magni af viðbættum sykri en aðrar sambærilegar vörur. Þá mun vefurinn einnig nýtast í kennslu.
Annar liður í tilefni Tannverndarviku er útgáfa myndbandsins Sykur á borðum. Í því er litið inn hjá fjölskyldu sem ætlar að eiga notalega stund við sjónvarpið. Myndbandið verður aðgengilegt á vef Embættis landlæknis á síðunni Tannvernd.
Tannverndarvika 2015 hefst formlega með dagskrá í Hagaskóla í Reykjavík, mánudaginn 2. febrúar 2015, kl. 11:00.
DAGSKRÁ
- Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla, setur samkomuna.
- Birgir Jakobsson landlæknir opnar vefinn www.sykurmagn.is og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Embætti landlæknis, sýnir hvernig vefurinn virkar.
- Myndbandið Sykur á borðum frumsýnt.
- Kristín Heimisdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, kynnir vinnu félagsins með grunnskólum landsins á komandi dögum.
- Myndbandið 45 GRÁÐUR, útgefið af Tannlæknafélagi Íslands, sýnt.
- Jón Jónsson tekur lagið.
Hólmfríður Guðmundsdóttir tannlæknir
Jóhanna Laufey Ólafsdóttir tannfræðingur
verkefnisstjórar
Heimild: landlaeknir.is