Fara í efni

Það er kominn föstudagur og hérna eru falleg orð frá Guðna lífsráðgjafa

Hugleiðing á föstudegi~
Hugleiðing á föstudegi~

Viltu umturna lífi þínu?

Það er sáraeinfalt.

Ein öflugasta hugleiðsla/vitundaræfing/athyglisæfing sem hugsast getur er að fylgjast með næringarferlum sínum.

Ekki breyta neinu heldur aðeins fylgjast með og skrásetja, því engin fjarvera er stærri en fjarvera matar og drykkjar: 

„Hvað er ég að næra? Hver er ásetningur minn með næringunni? Tilfinn­ ingar eða hold? Velsæld eða vansæld? Er ég að tyggja? Er ég að hugsa um eitthvað annað – er ég fjarverandi á meðan ég borða? Er ég lauf í vindi – borða bara það sem mér er rétt – eða ber ég ábyrgð á eigin neyslu með fyrirhyggjusemi? Er ég að bæla sársauka og vanmátt?  Er ég fórnarlamb?“ 

Svona kærleiksríkt kastljós á matarvenjur hefur mikil áhrif á viðhorfin til þess að næra sig – kastljósið afléttir blekkingu hungursins.