Fara í efni

Það er nú eitthvað að birta yfir, hugleiðing á fimmtudegi frá Guðna lífsráðgjafa

Hugleiðing á fimmtudegi~
Hugleiðing á fimmtudegi~

Alltaf verður þinn vilji, sama hversu veikur hann er eða hvaða tíðni þar ríkir. 

Ef þú lætur þig reka í gegnum lífið þá tekur við sú innbyggða sjálfstýring sem er hluti af okkur öllum – þá taka sjálfkrafa við stjórninni gömlu forritin sem við lærðum í æsku og byggjast oft á óskynsamlegum skilyrðingum og ályktunum.

Forritin búa í magnaðri vél sem heitir heili, en heilinn vill helst af öllu vera mjög upptekinn og halda spennustiginu háu.

Í huganum býr líka skortdýrið sem vill síst af öllu hlusta á hjartað og hvað það hefur til málanna að leggja.