Fara í efni

Þegar froskurinn losnar úr álögum - hugleiðing frá Guðna lífsráðgjafa

Það er mánudagur í dag og hér er hugleiðing dagsins.
Þegar froskurinn losnar úr álögum - hugleiðing frá Guðna lífsráðgjafa

Við lofum okkur öðrum manneskjum, bindum okkur vinnu á metnaðarfullan hátt, verjum börnin okkar og fjölskyldumeðlimi, hvað sem það kostar. Samt viljum við ekki standa með sjálfum okkur, í blíðu og stríðu, vera trygg og trúföst; viljum ekki elska okkur eins og við erum, hættum smám saman að verða trú-verðug og fyllumst vantrausti í eigin garð. 

Heitbinding við eigin tilvist og eigin persónu er ekki flóknari athöfn en að giftast annarri manneskju. Í henni felast nákvæmlega sömu hugmyndir. Samt er okkar eigin heitbinding mikilvægari.

Af hverju heitbindumst við annarri manneskju áður en við höfum mátt og heimild til að heitbindast sjálfum okkur? 

Heitbindingin er að skrifa undir á punktalínuna – að ganga að eiga sig, með kostum og göllum, í blíðu og stríðu. 
Að heitbindast sjálfum sér. 

Og einmitt þá rætist ævintýrið sem við höfum lesið um frá barnæsku – froskurinn losnar úr álögunum og breytist aftur í prins eða prinsessu.