Fara í efni

Þekkir þú sanna nánd? Hugleiðing frá Guðna á föstudegi

Hugleiðing á föstudegi~
Hugleiðing á föstudegi~

Innsæi er tær vitund, hjartað er beintengt.

Og auðvitað ratar tær vitund út úr völundarhúsi sem maður byggði sjálfur og rataði ekki út úr í skertri heimild. Því þannig er blekkingin; hún er völundarhús og þaðan er aðeins hægt að rata með sterku ljósi.

Þegar þú ert í sannri nánd við aðra manneskju upplifir þú tíðni hjartans í léttum skjálfta sem hríslast eins og þægilegur ylur um allar frumur líkamans.