Fara í efni

Þú verður grennri af því að kúra og knúsa

Hefur þú einhvern til að fara með upp í rúm í kvöld? Ef svo er þá er snjallræði að kúra saman og knúsast svolítið, það er gott fyrir sálina og svo er það að sögn grennandi!
Þú verður grennri af því að kúra og knúsa

Hefur þú einhvern til að fara með upp í rúm í kvöld?

Ef svo er þá er snjallræði að kúra saman og knúsast svolítið, það er gott fyrir sálina og svo er það að sögn grennandi!

Það ætti einmitt að koma sér vel fyrir þá sem glíma við aukakílóin.

Vísindamenn við Massachusetts General sjúkrahúsið í Boston í Bandaríkjunum hafa komist að þessari niðurstöðu í rannsóknum sínum. Þeir rannsökuðu áhrif ástarhormónsins oxytósín á þyngd fólks og hvort það geti hjálpað fólki við að léttast.

Hormónið losnar úr læðingi þegar fólk er í líkamlegri snertingu við annað fólk og dregur úr þörf fólks á að borða. New York Post hefur eftir Franziska Plessow, sem stýrði rannsókninni, að vitað hafi verið að oxytósín drægi úr neyslu fólks og dýra á mat en ekki hafi verið vitað hvernig það gerðist. Rannsóknin hafi leitt í ljós að hormónið geti haldið of þungu fólki frá því að borða stjórnlaust mikið.

Vísindamennirnir gáfu of þungum karlmönnum nefsprey, sem innihélt oxytósín, og gátu séð áhrif þess á getu karlanna til að hafa stjórn á matarlöngun sinni. Rannsókninni er ekki að fullu lokið en niðurstöðurnar lofa mjög góðu að sögn Plessow. Hún sagði að oft verði of feitt fólk að fara í skurðaðgerðir til að minnka fituna og því sé mjög ánægjulegt að sjá niðurstöður rannsóknarinnar sýna að hugsanlega verði hægt að nota hormónameðferð gegn aukakílóunum.