Turmerik súperskot – afar gott fyrir ónæmiskerfið
Þetta er sko eitthvað til að byrja daginn á.
Þetta er sko eitthvað til að byrja daginn á.
Turmerik súperskot til að koma kerfinu í gang og verja ónæmiskerfið.
Prufaðu að taka eitt svona skot í 7 daga og athugaðu hvort þú finnir mun á þér.
Hráefni:
1-2 hnúar af engifer
Hálf sítróna
1 hnúi af turmerik
Dass af cayenne pipar
Leiðbeiningar:
- Taktu til allt hráefni og vertu viss um að allt sé þvegið og tilbúið.
- Settu engifer, sítrónu og turmerik í safavél og vertu alveg viss um að þú náir öllum safa úr hráefninu.
- Skelltu safanum í skotglas og stráðu örlitlu af cayenne pipar yfir til að fá smá kikk í skotið.
Drekkið og njótið dagsins!