Fara í efni

Uppruni kaffis

Kaffi er upprunnið í kringum Rauðahafið á sjöundu öld en á sér einungis 300 ára sögu í hinum vestræna heimi.
Uppruni kaffis

Kaffi er upprunnið í kringum Rauðahafið á sjöundu öld en á sér einungis 300 ára sögu í hinum vestræna heimi.

Sagan segir af geitahirði í Yemen um 575 fyrir Krist. sem tók eftir því hvað geiturnar urðu fjörugar af að borða rauð ber af trjánum.  Hann  smakkaði berin en fann tóma beiskju, þá fékk hann sér  nokkur ber og fór með í munkaklaustrið þar skammt frá.

 

Munkarnir smökkuðu á baununum en leist ekki á og hentu berjunum í  eldinn.

Fljótt fundu þeir góðan  ilm þegar  baunirnar brunnu.  Þá var lagaður drykkur, sem í dag er neysluhæsti drykkur í heimi  á  eftir vatni!

Kaffi er í dag ræktað í 55 – 60 löndum. 

Talið er að kaffibaunin eigi sér uppruna í Afríku þar sem hún grær enn villt.

Fróðleikur frá kaffi.is