Verði minn vilji, hugleiðing frá Guðna á laugardegi
Hugleiðing á laugardegi~
Allir staðfesta heimsmynd sína með ytri hegðun sinni og sækja sér það sem þarf til að finna samhljóm við yfirlýstan mátt sinn eða vanmátt.
Hvort sem þú þrætir fyrir vanmætti þínum eða styrk hefurðu rétt fyrir þér. Hvort sem þú staðhæfir um vansæld eða velsæld þá hefurðu rétt fyrir þér.
Við viljum eða óviljum.
Innra með okkur er alltaf að finna einhvern vilja sem stýrir gjörðum okkar og er stöðugt á tali við heiminn. Samt er ábyrgðin alltaf okkar. Verði minn vilji – því alltaf verður minn vilji, jafnvel þótt ég velji að velja ekki heldur láta skortdýrið um það.