Fara í efni

Við hlaupum frá lasti og reynum að fá lof, hvað skildi Guðni vera að tala um í dag?

Hugleiðing á fimmtudegi~
Hugleiðing á fimmtudegi~

Við hlaupum frá lasti og reynum að fá lof. 

Skömmina forðumst við og eltumst við frægð, frama og viðurkenningu.
Ekkert af þessu veitir endanlega hamingju. 

Spurningin er aðeins hvort þú ert tilviljun eða slys – skapandi slys eða skapandi í vitund; skapari með skýran tilgang sem viljar heiminn og lífið til sín. Þú sleppur aldrei undan orkunni sem í þér býr – þegar þú velur að velja ekki velurðu slysið sem kemur; þú dregur til þín fólk eða aðstæður eftir því hvernig þinn innri vindur blæs, eftir orkunni sem í þér býr og á hvaða tíðni hún er.
Ertu slys eða ertu í viljandi tilviljun?

Frelsið felst í að viðurkenna þá staðreynd að við erum sífellt að ráðstafa orkunni til að staðfesta eigin sjálfsmynd, tilvist og viðhorf – frelsið felst í aðviðurkenna þessa staðreynd og taka sig þar með úr stöðu fórnarlambsins.
Vítahringur egósins og skordýrsins hljómar svona:

Lof eða last, ágóði eða tap, ánægja eða sársauki, frægð eða skömm.

Ákveddu og veldu.

Þannig hljómar líf í sjálfsábyrgð – þannig hljómar söngur þess sem elskar sig nógu mikið til að vilja valda lífi sínu sjálfur. Þegar þú hvorki ákveður né velur mun einhver annar gera það fyrir þig.

Samt verður ábyrgðin ennþá þín, því enginn annar en þú hefur vald yfir þinni orku og örlögum. Þangað til þetta breytist ertu valdalaus – því val er vald. Að taka ekki ákvörðun er ákvörðun í sjálfu sér – ákvörðun um að vera slys.