Viðtalið - Elva Rut er annar eigenda Plie dansskólans, við tókum hana í stutt spjall á dögunum.
Skemmtilegt viðtal við Elvu Rut, annan eigenda Plie dansskólans.
Fullt nafn: Elva Rut Guðlaugsdóttir
Segðu okkur aðeins frá sjálfri þér í stuttu máli og hvaðan ertu?
Ég er 32 ára og kem úr Hafnarfirði. Ætli það sé ekki hægt að segja að ég sé orkumikil og líði best þegar ég hef nóg fyrir stafni.
Hvað ert þú menntuð ?
Ég lærði BA (Hons) í Dance and Theatre Performance og Professional National Diploma í Musical Theatre frá Bird College í London og svo er ég með Associate og Licentiate kennsluréttindin frá National Association of Teachers of Dancing í Englandi.
Einnig tók ég réttindi í Body balance frá Les Mills og Animal Flow frá Global Bodyweight Training.
Átt þú feril sem dansari sjálf og ert jafnvel sjálf í skóla að læra dans ?
Ég dansaði til 25 ára aldurs. Um leið og ég flutti til Íslands fór ég aðkenna. Mín ástríða hefur alltaf legið meira í kennslunni.
Hvert er þitt helsta starf í dag og hvað ert þú búin að vera í því starfi lengi ?
Ég á og rek Plié listdansskóla og Plié heilsu ásamt Eydísi Örnu Kristjánsdóttur en Plie er staðsett á 2. hæð í Smáralindinni. Við unnum saman að því að stofna listdansskólann í 2 ár en hann var svo formlega stofnaður fyrir rúmu ári síðan. Plié heilsu stofnuðum við svo sumarið 2015. Ég hafði unnið í Hreyfingu í 4 ár og ákvað að það væri kominn tími til að prófa mig áfram með heilsuræktina sjálf.
Ég kenni fjöldann allan af tímum í Plié, allar tegundir af dansi og heilsurækt og svo hef ég verið að taka að mér einkatíma fyrir afreksfólk, til að bæta tækni og getu þeirra.
Ég hef unnið við kennslu frá 17 ára aldri.
Hvernig heldur þú þér ferskri sem dansara og danskennara ?
Ég er mjög dugleg að taka æfingar, bæði ein og með öðrum.
Við Eydís förum erlendis að minnsta kosti tvisvar á ári í endurmenntun í virta skóla. Þar fáum við innblástur og nýjar og ferskar hugmyndir sem við sníðum svo að okkar stefnu og námsefni til þess að nýta í kennslu. Þannig teljum við okkur alltaf vera að bæta okkur sem kennara sem og að gera skólann betri.
Nú er dans eitt form af frábærri hreyfingu sem hægt er að stunda sér til heilsubótar, gleði og ánægju. Hverjir eru helstu kostir danssins að þínu mati?
Fyrst og fremst hvað það er gaman að dansa. Það sem fullorðins dansinn hjá okkur hefur sýnt er að það geta líka allir dansað, og haft gaman að því um leið auk þess sem fólk tekur vel á því. Dansinn er einstaklega góð leið til að styrkja djúpvöðva, ná upp auknu vöðvaþoli, auka liðleika, bæta jafnvægi og líkamsstöðu. Svo er þetta svo frábær félagsskapur og endar oft á löngu spjalli eftir æfingar.
Nú hafið þið Eydís verið með mjög vinsæl námskeið fyrir börn í ballett, listdansi, steppi ofl. hvering hafa viðtökurnar verið og hvað er vinsælast?
Viðtökurnar hafa verið hreint ótrúlegar. Ég held að fólki líki við okkar hugmyndafræði. Það er svo mikilvægt að það sé vandað til verks þegar börn eru annars vegar. Við þurfum strax að byrja að mynda jákvæða líkamsímynd. Það er fljótt að fyllast í alla hópa og við keppumst við að bæta við hópum eftir þörfum.
Vinsælast er dansfjör fyrir 2-3 ára og ballet fyrir börn frá þriggja ára til sex ára.
Þið hjá Plie eruð ekki eingöngu með „fókus“ á dans og tjáningu heldur einnig almenna heilsu. Hver er hugmyndafræðin á bak við „Plie heilsa“ ?
Plié Heilsa er hugsuð sem wellness stöð, með fagmensku að leiðarljósi. Heilnæm nálgun á þjálfun fyrir karla og konur í fallegu og notalegu umhverfi. Við bjóðum uppá yoga, barre, pilates og animal flow námskeið. Við leitumst eftir andlegri næringu jafnt sem líkamlegri og án öfga. Jafnvægi á milli sálrænnar og líkamlegrar heilsu. Heilsa og vellíðan er númer 1, 2, 3.
Er eitthvað annað en „Plie heilsa“ nýtt á döfinni?
Já við erum með ýmislegt í pokahorninu en það er ekki alveg tímabært að ræða það.
Ný og fullkomnari heimasíða sem Kosmos & Kaos eru að gera fyrir okkur fer í loftið í janúar, mæli með því að fylgjast með.
Nú hafið þið verið að kynna ykkur ánægju foreldra barna sem stunda dans hjá ykkur, var eitthvað sem kom ykkur á óvart í þeirri könnun og hvernig notið þið hana til að byggja ofan á það sem þið hafið þegar gert sl. ár ?
Ég held að það hafi komið mest á óvart hversu jákvæðar niðurstöðurnar voru. Það er mjög gott að vita hvað foreldrar eru ánægðir með af því við munum einblína á að styrkja þann hluta.
Uppbyggileg gagnrýni er eitthvað sem er öllum góð og höfum við tekið þau atriði sem betur mætti fara og sett í ferli til að ganga úr skugga um að allir kennarar séu meðvitaðir um að það þetta þurfi að laga.
Hver er besta bók sem þú hefur lesið og ertu að lesa eitthvað núna ?
Ég nýt þess að lesa og hef lesið mikið af góðum bókum en ég hugsa að sú bók sem skilji mest eftir sig sé Dýragarðsbörnin. Ég las hana fyrst þegar ég var 12 ára.
Núna er ég að lesa While my eyes were closed eftir Lindu Green
Nefndu þrennt sem þú átt alltaf til í ísskápnum ?
Egg, avocado og ost. Reyndar líka Mango Chutney einfaldlega af því að ég gleymi alltaf að ég eigi það til. Núna á ég 6 krukkur. Vandræðalegt.
Ég er dolfallinn yfir víetnömskum og indverskum mat og elda oft tikka masala og crispy duck.
Hvað gerir þú þér til gamans annað en að lifa og hrærast í dansgeiranum ?
Það er kannski einn galli við að vinna við áhugamálið sitt, það komast fá áhugamál fyrir.
En mér finnst frábært að ferðast,
Hvað er það besta sem þú gerir eftir æfingu ?
Að teygja vel á líkamanum og fara í sjóðandi heitt bað.
Ef þú ætlar að „tríta“ þig sérlega vel hvað gerir þú ?
Fer í yoga eða nudd.
Hvað segir þú við sjálfa þig þegar þú þarft að takast á við stórt/erfitt verkefni ?
Ég reyni að hugsa aldrei um að verkefnin séu stór eða erfið, það getur orðið svo yfirþyrmandi.
Ég verð mjög einbeitt og horfi á eitt atriði í einu og áður en ég veit af er ég komin á leiðarenda.
En svo er ég mjög þrjósk og „get, ætla, skal“ hefur komið mér langt.
Hvar sérð þú þig fyrir þér eftir 5 ár ?
Ég sé mig fyrir mér njóta þess að lifa og hrærast í Plié dans & heilsu, vonandi verðum við Eydís komnar með enn stærri deildir og jafn sáttar við lífið og við erum núna.