Afar góður drykkur fyrir fallega húð
Hver vil ekki hafa fallega húð ? Skelltu í þennan drykk því hann er stútfullur af góðri næringu fyrir húðina.
Hráefnið sem þú þarft í þennan drykk er:
1 gulrót
1 meðal stór gúrka
1 fekar lítil rauðrófa
1 stór appelsína
½ haus af rauðkáli
½ lime
2 msk af engifer
Undirbúningur:
Þú byrjar auðvitað á því að þvo allt grænmetið.
Síðan setur þú allt nema appelsínna og lime í safapressu.
Kreistu allan safann úr appelsínunni og lime ávextinum og geymdu í skál.
Taktu nú safann sem þú varst að pressa og blandaðu safanum úr appelsínunni og lime og hristu vel saman.
Og hvað er svona hollt við þennan drykk?
Minnkun á kollageni í húðinni er aðal ástæða þess að húðin verður slöpp og líflaus þegar fer að líða á árin.
Þú getur aukið á kollagen í líkamanum með því að vera dugleg að neyta drykkjar eins og þessum.
Hérna eru ástæðurnar afhverju þessi drykkur hjálpar húðinni:
- Gulrætur eru ríkar af carotene sem er afar gott fyrir húðina.
Þær innihalda einnig mikið af andoxunarefnum og næringarefnum sem eru góð fyrir almenna heilsu.
- 96% af gúrkum er vatn og við vitum að vatn er afar mikilvægt fyrir fallega húð.
- Rauðrófur eru ríkar af zinki og járni. Þessi tvö efni eru lykillinn að fallegri húð.
- Appelsínan, lime og rauðkál eru afar rík af C-vítamíni og andoxunarefnum sem ver frumur líkamans gegn skemmdum.
Drekkið og njótið~