Ananas piparmyntu safi – algjört æði
Ferskur, orkugefandi og leikur við bragðlaukana.
Ferskur, orkugefandi og leikur við bragðlaukana.
Gerðu þennan djús þegar þig vantar vökva í líkamann.
Hann er stútfullur af vítamínum og andoxunarefnum og þú finnur hreinlega orkuna fylla líkamann.
Uppskrift er fyrir 2 drykki.
Hráefni:
4 litlar gulrætur
1 epli
1 appelsína
4-5 sneiðar af ferskum ananas
Handfylli af ferskum piparmyntu laufum
½ gúrka
Leiðbeiningar:
Skerðu, sneiddu, og afhýddu það sem þarf áður en þú byrjar að setja hráefnið í djúsarann þinn.
Þú ættir að flýta þér því eftir sopa af þessum djús þá munt þú gera hann aftur og aftur.
Bragðlaukarnir brosa, njótið vel!