Engifer og ferskju smoothie
Frábær til að fæla í burtu hálsbólgu og kvef.
Góður við kvefinu
Ég gæti trúað að þessi væri góður ef að kvef eða hálsbólga sækir að.
Hráefni:
2 bollar af frosnum ferskjum í sneiðum
1 bolli af hreinum jógúrt
1/2 bolli af apríkósum - kjötinu ekki hýðið
1/4 bolli af organic engiferöli, kælt
2 msk af hunangi
1/4 tsk af söxuðu engifer
Öllu skellt í blandarann og látið blandast á háum hraða þangað til mjúkt.
Borðið fram í uppáhalds glasinu þínu með röri.