Glútenfríar og ljúffengar rjómabollur með jarðarberjafyllingu
Dásamlegar glútenfríar bollur til að skella í fyrir bolludaginn.
Dásamlegar glútenfríar bollur til að skella í fyrir bolludaginn.
Uppskrift gefur 8 – 10 bollur.
Hráefni:
- 100 g smjör
- 2 dl vatn
- 2 msk sykur (má sleppa)
- 120 g Finax glútenfrítt mjöl
- 3 stór egg (eða fjögur lítil)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C.
- Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 – 3 mínútur áður en hveitið er sett út í. )
- Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.
- Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman.
- Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum.
- Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hæta á að bollurnar falli.
Jarðarberjafylling
- 1 askja jarðarber ca. 8 – 10 stk.
- 4 dl rjómi
- 2 tsk flórsykur
Aðferð:
- Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.
- Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin.
- Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.
- Setjið fyllinguna í sprautupoka og sprautið á bollurnar. Ég sáldraði flórsykri yfir bollurnar en það er að sjálfsögðu hægt að setja á þær glassúr. Bæði betra.