Grænmetis Tagine
Ég hef ekki komið til Marokkó en ef ég hefði komið þangað þá myndi þessi réttur eflaust minna mig á Marokkó.
Bragðið af þessu Tagine er allavega það sem ég skilgreini sem marokkóskt bragð... og ég kann sko heldur betur að meta það!
Einfalt, fljótlegt (fyrir utan smá malltíma) og ofboðslega hollt og gott!
Kúskúsið er hreinlega ómissandi með.
Grænmetis Tagine
Olía til steikingar
1 rauðlaukur
2-3 meðalstórar gulrætur
1 tsk kanill
1 tsk basilíkum
1 tsk cumin
1/2 tsk túrmerik
1/2 tsk paprikuduft
2 hvítlauksrif
1 lítil sæt kartafla eða 1/2 stór
1/2 blómkálshöfuð
1 dós niðursoðnir tómatar frá Biona
300 g soðnar baunir frá Sólgæti (ég notaði 150 g kjúklingabaunir + 150 g haricot baunir)
*Ath. má nota 1 dós af niðursoðnum baunum í staðinn
5 dl vatn
1 grænmetisteningur frá Kallo
Safi úr hálfri sítrónu
Salt og pipar eftir smekk
Kúskús með apríkósum
100 g kúskús frá Sólgæti
1 1/2 dl vatn
2 tsk ólífuolía
Herbamare salt á hnífsoddi
1 dl smátt skortnar apríkósur frá Sólgæti
Aðferð - Grænmetis Tagine
1) Skerið laukinn og gulræturnar smátt og steikið upp úr olíu á pönnu.
2) Bætið við kryddum og steikið áfram í 2-3 mínútur.
3) Skerið grænmetið smátt og bætið út á pönnuna ásamt pressuðum hvítlauk. Steikið áfram í stutta stund.
4) Bætið baunum og grænmetisteningi við og hellið vatni og tómati út á pönnuna. Látið allt malla á pönnunni í 45 mínútur á miðlungs hita.
5) Kreistið sítrónu yfir og smakkið til með salti og pipar.
Aðferð - Kúskús
1) Sjóðið vatn í potti þar til suðan er orðin töluverð.
2) Slökkvið undir og bætið kúskúsi, apríkósum, ólífuolíu og herbamare við. Flöffið með gaffli og berið fram með réttinum.
Uppskrift frá birnumolar.is