Grænn með jarðaberjum og basil
Jarðaber og basil smakkast mjög vel saman.
Jarðaber og basil smakkast mjög vel saman.
Í þessum drykk eru einnig chia fræ sem eru full af omega -3 og próteini.
Uppskrift fyrir einn.
Hráefni:
6 meðalstór jarðaber – gott að frysta fersk jarðaber
6 fersk basil lauf
2 msk af chia fræjum – látin liggja í bleyti í 5 mínútur
1 banani
2 bollar af spínat
Möndlumjólk eftir smekk – má nota aðra mjólk
Leiðbeiningar:
- Settu vökvann í blandarann ásamt öllu hráefninu og láttu á góðan hraða og leyfðu að blandast þar til mjúkt.
Þessi drykkur er einnig fullur af B1 til B6 vítamínum, kopar, magnesíum og kalíum.
Njótið vel!