Grænn með kasjúhnetum og banana
Þessi dásemdar uppskrift er frábær leið til að bæta góðu fitunni í drykkinn þinn. Í kasjúhnetum er nefnilega nóg af omega-3 fitusýrum.
Þessi dásemdar uppskrift er frábær leið til að bæta góðu fitunni í drykkinn þinn. Í kasjúhnetum er nefnilega nóg af omega-3 fitusýrum.
Engiferið er frábært fyrir meltinguna og einnig ef þú ert með flensu og gulrætur eru stútfullar af A-vítamíni og andoxunarefnum.
Drykkur er fyrir einn. Þessi er númer 21.
Hráefni:
1 banani án hýðis
¼ bolli af hráum kasjúhnetum – ekki nota ristaðar hnetur
¼ tsk af engifer
1 lítil gulrót
3 bollar af baby spínat
240 ML af ósætri möndlumjólk eða mjólk að eigin vali
Leiðbeiningar:
- Byrjaðu á því að setja vökvann í blandarann og síðan bananann og látið bandast vel.
- Setjið núna rest af hráefnum saman við og látið blandast mjög vel í 30 sekúndur eða lengur.
Ef þú vilt hafa drykkinn kaldann þá skaltu hafa bananann frosinn eða bæta ísmolum saman við.
Ef uppskrift er of stór þá má geyma afganginn í lokuðu íláti í ísskáp í 24 tíma.
Njótið vel!