Heilsudrykkur – Appelsínuhristingur
Eru ekki örugglega komnar mandarínur í verslanir?
Eru ekki örugglega komnar mandarínur í verslanir?
Þessi drykkur er stútfullur af C-vítamíni og fleiru góðgæti.
Uppskrift er fyrir einn drykk.
Hráefni:
½ bolli af undanrennu
3 steinlausar mandarínur, án hýðis
1 banani – frosinn
2 stórir ísmolar
1 tsk hunang
Og ef þú átt vanillustöng þá skelltu henni með
Leiðbeiningar:
Skelltu öllu hráefni í blandarann og láttu á góðan hraða og leyfðu að blandast þar til drykkur er mjúkur og freiðandi.
Helltu í glas, drekkist strax og njóttu!