Heilsudrykkur – Dásamlegur á morgnana
Hér er einn sem fer beint í djúsarann ykkar.
Frábær drykkur, frískandi og fullur af hollustu.
Uppskrift er fyrir 2 drykki.
Hráefni:
1 stór gúrka
Lúkufylli af grænkáli
Lúkufylli af romaine káli
3 stilkar af sellerí
1 stór brokkólí stilkur
1 grænt epli
½ afhýdd sítróna
Leiðbeiningar:
Þvoið allt hráefnið og skellið í djúsvélina.
Drekkist strax og njótið vel !