Paprikusúpa með kasjú og chili
Bragðgóð, holl og kraftmikil súpa sem slær í gegn núna þegar það fer að kólna í veðri.
Uppskrift er fyrir 4.
Hráefni:
GRUNNUR
4 rauðar paprikur
1 gulrót
1 laukur
2 msk Rapunzel ólífuolía
500 ml Rapunzel grænmetiskraftur
2 msk Rapunzel kasjúhnetur ristaðar
Rapunzel sjávarsalt
Svartur pipar
100 g sýrður rjómi
CHILIBLANDA
1 gul paprika
1 msk Rapunzel ólífuolía
1 msk Rapunzel kasjúhnetubrot
1 slétt teskeið chillimauk
Rapunzel sjávarsalt
graslaukur
Leiðbeiningar:
1. Rauðu paprikurnar eru skornar í smáa bita, gulrótin flysjuð og skorin í bita og laukurinn afhýddur og saxaður fínt.
2. Olían er hituð í potti og laukurinn steiktur þar til hann verður glær.
3. Paprikum og gulrót bætt út í og steikt í nokkrar mínútur.
4. Grænmetissoðinu er þá bætt út í og grænmetið látið malla í um 10 mín. með lokið á pottinum eða þar til það er orðið mjúkt.
5. Á meðan má skera gulu paprikuna í smáa bita.
6. Hita olíu á pönnu og setja paprikuna og kasjúbrotin út á.
7. Bætið chillimauki við ásamt 2 msk af vatni og hrærið í á meðan mallar, þar til vökvinn gufar upp.
8. Örlitlu salti er bætt við og pönnunni haldið heitri.
9. Maukið súpuna ásamt 100 g sýrðum rjóma og 2 msk af ristuðum kasjúhnetum með töfrasprota eða blandara.
10. Bætið chilliblöndunni við súpuna og smakkið til með salti og pipar.
11. Berið súpuna fram með slettu af sýrðum rjóma útí ásamt graslauk.