Sushi - uppskeruveisla frá Mægðunum
Við höldum áfram að fagna grænmetisuppskerunni. Hvort sem við höfum ræktað okkar eigið grænmeti, eða einfaldlega njótum úrvalsins í búðunum, þá er svo gaman að töfra fram hollan mat á þessum árstíma og leyfa hráefninu að njóta sín.
Við áttum fallegt blómkál, nýuppteknar gulrætur, hnúðkál, brokkolí, rabarbara og bragðmikil jarðarber sem okkur langaði að umbreyta í fallega uppskerumáltíð.
Sushiveisla varð fyrir valinu. Við notuðum blómkálið sem fyllingu í staðinn fyrir hrísgrjón. Oft finnst okkur mjög gott að nota hýðishrísgrjón eða kínóa, en blómkálið er skemmtileg tilbreyting. Inn í sushi-ið fór ferskt grænmeti í þunnum strimlum, snöggsteikt brokkolí og rabarbarasneiðar steiktar uppúr chili. Rabarbarinn er ótrúlega skemmtilegur matreiddur á þennan hátt, algjör bragðsprengja. Svo var spicy mayo auðvitað ómissandi inn í og jarðarberin fríska upp á.
Þessum dásamlegu sushibitum dýfðum við í blöndu af tamari sósu og engiferskoti (safa). Hvílík sæla!
Uppskriftin
- 4 rúllur
4 blöð noriþari
2 bollar blómkálshrísgrjón (uppskrift hér fyrir neðan)
brokkolí, skorið í langa bita
rabbarbari, skorinn í þunnar sneiðar
gulrætur
hnúðkál (má sleppa)
nokkur jarðaber
spicy mayo
sambal eða annað gott chili mauk
Blómkálshrísgrjón
1 meðalstórt blómkálshöfuð, blómin skorin af stönglinum og svo í litla bita
1 ½ dl kasjúhnetur/furuhnetur, lagðar í bleyti í 2 klst, smátt saxaðar
1-2 msk næringarger
1 msk laukduft
1 tsk salt
smá nýmalaður svartur pipar
til að dýfa í:
4 msk tamarisósa
1 msk engiferskot
Aðferðin
- Skerið blómkálsblómin af stönglinum, skerið í litla bita og setjið í matvinnsluvélina í smá stund (teljið upp að 5 – það er nóg, hámark 10 sekúndur, annars verður blómkálið rammt og klesst) eða þar til kálið minnir á lítil korn eða hrísgrjón.
- Blandið restinni af blómkálshrísgrjónauppskriftinni saman í stóra skál.
- Létt steikið brokkolíið á pönnu, t.d. í örlítilli kókosolíu.
- Steikið síðan rabarbarasneiðarnar á pönnu upp úr smá kókosolíu og chilli sambal blöndu eða öðru góðu chili.
- Skerið gulrætur og hnúðkál í strimla, jarðarberin í tvennt.
- Leggið blað af nori þara á bambusmottu (látið glansandi hliðina snúa niður).
- Setjið lag af blómkálshrísgrjónum, þjappið þeim niður og setjið síðan brokkolí, rabarbara, gulrætur, hnúðkál, jarðaber og spæsý mæjó í línu eftir ca miðju blaðinu.
- Rúllið sushimaki rúllunni upp, gott að vefja frekar þétt svo hún haldi sér betur.
- Lokið rúllunni með því að væta endann með smá vatni svo rúllan límist betur saman.
- Skerið hverja rúllu í 6-8 bita.
- Berið fram með tamari og engiferblöndunni.
- Njótið!
Birt í samstarfi við: