Uppáhalds smákökurnar frá Heilsumömmunni
Ég hef ekki lengur tölu á því hversu oft ég hef bakað þessar kökur.
Það er í raun alveg óskyljanlegt af hverju uppskriftin er ekki þegar á blogginu.
Við erum að tala um að þegar fjölskyldan fór til Svíþjóðar fyrir tveimur árum bakaði ég 10-falda uppskrift af þessum kökum. Já ég er ekki að grínast… þið haldið væntanlega núna að ég sé alveg gúgúgaga en fyrir vikið við áttum alltaf til fullkomið nesti, hvort sem það var á flugvellinum, í Gröna Lund eða bara með morgunkaffinu. Síðan þá (og einnig fyrir þann tíma) hafa þessar kökur verið bakaðar fyrir hin ýmsu tilefni og mjög oft þegar þarf að redda nesti á núll -einni. Því fyrir utan að vera þræl góðar þá eru þær alveg þrusu fljótlegar líka. Þessar kökur eru því tilvaldar í nesti í sumar hvort sem það er í millilandaflug eða í lautarferð.
Hráefni:
1 dl kókosolía (brædd)
1 dl kókospálmasykur (má líka hafa 50/50 Kókospálmasykur og Stevíu strásætu)
1 egg
1 tsk vínsteinslyftiduft
2 dl möndlumjöl
1 dl kókosmjöl
1/2 tsk salt
50 g dökkt súkkulaði, saxað
1/2 dl sólblómafræ
Aðferð:
- Bræðið kókosolíuna t.d. með því að setja rétt magn í glas eða krukku og setja það ofan í annað ílat með heitu vatni.
- Saxið súkkulaðið.
- Setjið öll innihaldsefnin í skál og blandið vel saman.
- Setjið deigið á bökunarplötu með teskeið.
- Bakið í 10-12 mín við 180°c
Eins og sést á hráefnislistanum eru þessar ljúfu smákökur bæði mjólkur- og glúteinlausar.
Verði ykkur að góðu.