Fara í efni

Ert þú í fæðingarorlofi eða á leiðinni í eitt slíkt?

Viltu njóta útiveru í fallegu umhverfi? Viltu hafa barnið með þér meðan þú púlar? Viltu fá hvatningu og aðhald? Komdu þá til okkar í KERRUPÚL!
Ert þú í fæðingarorlofi eða á leiðinni í eitt slíkt?

Viltu njóta útiveru í fallegu umhverfi?
Viltu hafa barnið með þér meðan þú púlar?
Viltu fá hvatningu og aðhald?
Komdu þá til okkar í KERRUPÚL!
 

Kerrupúlstími

Alltaf eru tveir þjálfarar með hvern tíma! Annar þjálfarinn leiðir tímann/hópinn, hinn rekur lestina, þannig getu hver og ein kerrupúlsmóðir farið á sínum hraða og þannig getur hópurinn verið blandaður af byrjendum sem og lengra komnum. Þjálfarar eru duglegir við að passa upp að allir fái verkefni við sitt hæfi, annað hvort með því að auka við endurtekningar og ákefð hjá þeim sem lengur hafa verið eða draga úr ákefð hjá nýjum. 

Iðkenndur eru beðnir í upphafi námskeiðs að tilkynna þjálfurum um stoðkerfisvandamál, eins og t.d grindarverki.

Eitthvað er um létt skokk í hverjum tíma, en hver og ein getur stjórnað því hvort hún skokki eða ekki. Það er alltaf svigrúm til að breyta yfir í röska göngu í staðin fyrir skokk þegar um slíkt er að ræða!

Hefðbundinn Kerrupúlstími er svona uppbyggður:

Staðsetning: Laugardalurinn og hans nánasta umhverfi.

Kraftganga með vagnana í upphitun, upp og niður brekkur og á flötu.

Stöðvaþjálfun í mjög fjölbreyttu formi þar sem lögð er áhersla á þol og styrk. Einstaklingsverkefni í bland við para –og hópþjálfun. Áhersla á stóru vöðvahópana og svæðið í kringum grindina, til að styrkja mæður eftir barnsburð, en einnig á efri hluta líkamans.......við þurfum jú allar að geta haldið á börnunum okkar án þess að bugast undan vöðvabólgu. Æfingar eru gerðar ýmist með vagnana eða án þeirra.

Tímarnir eru þannig upp byggðir að ekki er stoppað of lengi á hverjum stað fyrir sig með vagnana. Þess í stað er stoppað oftar og styttra og arkað rösklega á milli með vagnana. Þannig höldum við púlsinum uppi og aukum þolið og gönguhraðann hratt og áræðinlega.

Allir tímar enda á léttum teygjum en það er svolítið háð veðurfari hversu lengi við stoppum við teygjurnar.

Við tökum vel á móti þér í fæðingarorlofinu á Kerrupúlsnámskeið í Laugardalnum!

Nánari upplýsingar á www.kerrupul.is