Chiafræin eru góð fyrir þá sem eru með glútenóþol. Chiafræin er líka mun fljótlegra að leggja í bleyti heldur en önnur fræ en þau þarf aðeins að hafa í bleyti í um 10-20 mínútur, en því lengur því betra og best yfir nótt.
½ dl Chia fræ
vatn eða möndlumjólk/rísmjólk
banani eða aðrir ferskir ávextir eða frosin ber
kanill
Þegar fræin eru öll vel böðuð er gott að taka hálfan banana og mauka hann léttilega með grautnum með gaffli í skálinni eða setja frosin bláber eða önnur ber eða ávexti út í. Gott er að strá kanil yfir eða niðurskornum ávötum.
Setjið ½ dl af chia fræjum í skál og baðið þau í vatni, þegar þau hafa legið nógu lengi (minnst 10 mínútur) er gott að hræra vel í grautnum og tryggja að það séu engir kekkir af þurrum fræjum. Því lengur sem þau fá að liggja í vatninu, því meira tútna þau út og því best ef þau fá að liggja yfir nótt. Einnig er gott að bleyta þau í möndlumjólk, sojamjólk, haframjólk eða rísmjólk eftir smekk.
Það er svo mjög auðvelt og gott að gera góðan og saðsamann morgundrykk úr sömu innihaldsefnum . Þá eru settir um 300 ml af valinni mjólk í glas með loki, bætt við ¼ dl af chia fræjum, um 1 dl af frosnum bláberjum og drykkurinn er síðan hristur vel saman. Látið drykkinn svo standa í glasinu í um 30 mínútur áður en hann er drukkinn. Þá fá chia fræin að þenjast út og frosnu bláberin halda drykknum köldum.
Höfundur Stefanía Sigurðardóttir