COVID-19 sjúkdómurinn orsakast af SARS-COV-2 veirunni og veldur í upphafi sýkingu í hálsi, nefholi og nefkoki. Veiran getur síðan dreift sér í neðri öndunarfæri. Þar getur hún valdið bólgum og sýkingu í berkjum og lungnavef.
Sjúklingar með meðalslæman og alvarlegan astma eru skilgreindir sem áhættuhópur. Þetta eru þeir sjúklingar sem eru daglega með astmaeinkenni þrátt fyrir fulla lyfjameðferð eins og andþyngsli, mæði, hósta, ýl og surg en á ekki við þá sem eru með vægan astma.
Mikilvægt er að sjúklingar með astma noti áfram innúðastera sem þeim hafa verið ávísaðir. Nokkur umræða hefur verið um að barksterar veiki ónæmiskerfið. Þetta á ekki við um innúðastera sem einmitt geta dregið úr bólgum í berkjum. Góð astmastjórn og notkun fyrirbyggjadi innúðastera er forsenda þess að geta ráðið við COVID-19 sem og aðrar veirusýkingar.
Ef astmasjúklingur veikist með COVID-19 á hann eða hún ekki að hætta á astmalyfjunum.
Sjúklingar sem eru með alvarlegan astma og eru á líftæknilyfjum eiga að halda þeim áfram. Mikilvægt er að þessi meðferð stöðvist ekki hvort sem hún er gefin áfram á göngudeild eða í heimahúsi. Þessi lyf eru ekki ónæmisbælandi og niðurstöður rannsókna hafa sýnt að einhver þeirra gætu jafnvel styrkt ónæmiskerfið í baráttunni við veirusýkingar almennt.
Sérhæfð Astma Mótttaka (SAM) á A3 fyrir alvarlegan astma er áfram starfrækt en með breyttu sniði.
Í stað viðtala á göngudeild verður boðið uppá símtal. Gjöf líftækni lyfja við astma verður með óbreyttu sniði á göngudeildinni fyrir þá sjúklinga sem geta ekki fengið meðferðina heima hjá sér. Hægt verður að ná sambandi við hjúkrunarfræðinga og lækna eftir sem áður ef vandamál koma upp í síma 543-6040.
__________________________________________________________________________________
Embætti Landlæknis gaf út ítarlegar leiðbeiningar 7. mars 2020 sem gott er að lesa.https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item39475/Lei%C3%B0beiningar%20fyrir%20%C3%A1h%C3%A6ttuh%C3%B3pa.pdf
Almennar ráðleggingar má lesa hér:https://www.covid.is/undirflokkar/ahaettuhopar
Það er mikilvægt að forðast sýkingu með öllum ráðum: Það gildir eins og fyrir aðra að:
Hægt er að fá vottorð hjá lækni ef fólk vill stunda nám eða vinnu að heiman.