Þekking á áhættuþáttum og einkennum vímuefnaneyslu getur komið sér vel, í tilfellum þar sem um neyslu vímuefna er að ræða eða hætta er á slíku. Einnig til að koma í veg fyrir misskilning, óþarft vantraust og grunsemdir vegna atvika eða hegðunar sem ekkert hefur með neyslu vímuefna að gera.
Breytt hegðun og nýir vinir geta verið merki um slíka hættu. Þekking getur því hugsanlega komið í veg fyrir alvarlega þróun vímuefnaneyslu unglings eða erfiðleika í samskiptum. Mikilvægt er að þekkja þau efni sem fyrst eru notuð – kynningarefnin – en það eru oftast hass og sniffefni, sem fylgja á eftir áfengi og tóbaki. Þá hefur neysla á alsælu og amfetamíni færst í aukana á síðustu árum. Eftirfarandi er því vert að hafa í huga og fylgjast með:
Vert er að hafa í huga að unglingar ganga í gegnum breytingarskeið sem oftar en ekki fylgir breyttur lífsstíll sem hluti af þroskaferli ungs fólks. Ofangreint einungis til viðmiðunar en vert er að hafa vakandi auga með þróuninni og leita sér frekari aðstoðar eða upplýsinga ef þörf þykir. Vonandi á ekkert af þessu við um þinn ungling – en ef þú telur hann í hættu og þarfnast aðstoðar þá er hægt að leita hennar t.d. á heilsugæslu og félagsþjónustu sveitarfélaga. Á heimasíðu Velferðarráðuneytisins má finna upplýsingar yfir meðferðarúrræði.
Grein fengin af vef hun.is