Það er samt ekki verið að meina að allir alltaf eigi að stara í augun hvort á öðru. En augnsamband við þann sem þú ert að stunda kynlíf með gerir kynlífið nánara og feimnin fýkur um lönd og leið.
En hvers vegna augnsamband?
- Fólk tengist betur. Það er ekki bara snertingin eða kynlífsleikföngin sem hjálpa fólki að tengjast náið í rúminu.
- Augnsamband er besta leiðin til að tjá sig án orða í kynlífi. Þú getur notað það t.d ef að þú ert að fíla eitthvað æðislega vel eða ef eitthvað er ekki gott.
- Veikleikar eru merki um að þú ert mannleg(ur). Fólk sem að finnur fyrir óþægindum ef það horfir á makann á meðan á kynlífi stendur ætti að æfa sig í augnsambandi. Að sýna veikleika okkar styrkir sambandið.
Það er ekkert að hræðast nema sjálfa hræðsluna og þegar þú kemst yfir hana og ert farin(n) að horfa í augun á kynlífsfélaganum að þá áttu von á mögnuðu kynlífi það sem eftir er.
Heimildir: drkat.com