En hvers vegna viljum við deila einkamálefnum okkar og ástarmálum með fólki sem við þekkjum mismikið á samfélagsmiðlum. „Sumir gera það til að sannfæra sig um að sambandið sé í lagi. Aðrir til að vekja afbrýðisemi og enn aðrir vegna þess að þeir hafa þörf fyrir að deila hamingju sinni með umheiminum,“segir danski blaðamaðurinn Susanne Vigsö Grön á vef danska ríkisútvarpsins Lev nu.
„Nýkominn til Mílanó með þessari fallegu stúlku. Til allrar hamingju er hún mín. Elskan mín, þakka þér þetta óvænta boð, það var dásamleg afmælisgjöf að fá langþráða helgarheimsókn til Ítalíu. Elska þig upp til stjarnanna og til baka til jarðar.“ Flest höfum við lesið skilaboð á borð við þessi. Susanne spurði sálfræðinginn, Jesper Bay-Hansen hvers vegna fólk setti slík skilaboð á Fésbók. Hvers vegna fólk gæti ekki alveg eins sagt þetta hvert við annað. Jesper segir að þetta snúist næstum alltaf um að uppfylla þarfir þess sem skrifar. Það getur verið þörf fyrir að deila og staðfesta fyrir sjálfum sér og öðrum að maður elski einhvern. Ástæðan gæti líka verið að fólk vildi upphefja sjálft sig, vekja undrun annarra eða þörf fyrir að skapa öfund eða afbrýðisemi.
Fólk getur verið að búa til jákvæða mynd af sjálfu sér þegar það deilir sínum innstu tilfinningum eða skapa jákvæðan veruleika fyrir sjálft sig. Það getur haft góð áhrif á sambönd að deila fallegum skilaboðum. Jesper segir að afstaða karla og kvenna til slíkra skilaboða sé mismunandi. Konum finnist oft að maki eða kærasti sé leitandi þegar hann setur slíkar ástarjátningar á Fésbók en karlar túlki skilaboðin sem að konan vilji hann. Þetta er þó ekki einhlítt, segir hann því sumir setji slíkar færslur inn á Fésbókina því þeir vilji skuldbinda sig. Þetta sé svolítið eins og að staðfesta ástina fyrir augliti kunningja, vina og fjölskyldunnar.
En svo þverstæðukennt sem það kann að hljóma geta ástarjátnigar á Fésbókinni líka verið sprottnar af því að fólk er óöruggt um ástina eða í vafa. Sumir játa ást sína á Fésbókinni til að reyna að sannfæra . . . LESA MEIRA