Hér er algjört tryllitæki á ferðinni og án efa einn besti blandarinn á markaðinum. Þökk sé 2,2 hestafla / 1200W mótor verður allt sem í hann er sett að silkimjúkri blöndu á augabragði. Hnífurinn snýst heila 26.000 hringi á mínútu og þú getur valið á milli nokkurra kerfa t.d. súpu, klaka og smoothie. Kannan er nær óbrjótanleg og úr Tritan plasti sem þolir 100°C heitar blöndur og því tilvalinn í ljúffengar grænmetissúpur. Blandarinn ræður jafnvel við seigar og harðar blöndur eins og döðlur, fræ, hnetur, kaffibaunir, klaka og frosna ávexti. Skoða nánar hér: http://rafha.is/product/do-486bl-blandari-power
Á 8 mínútum getur þú líka blandað og hitað t.d. súpu. Skoðaðu myndbandið fyrir neðan.