Sund þetta er til styrktar Lífi styrktarfélagi Kvennadeildar Landspítalans. Mun allur ágóði af sundinu renna til endurbóta á aðstöðu foreldra sem þurfa að dvelja langdvölum á Landspítalanum með barn á vökudeild eða á Sængurkvennagangi Kvennadeildar. En sjálfur hefur Guðmundur þurft að nýta sér aðstöðu vökudeildar Landspítala vegna veikrar dóttur sem fæddist núna í janúar. Hægt er að fylgjas með undirbúningi sundsins á Facebook síðu 24.stunda sundsins HÉR.