1. Púðrið:
Slepptu púðrinu því það sest í fínar línur og gerir þær enn meira áberandi og bætir á mann nokkrum árum. Ef þú vilt síður glansa veldu þér þá primer eða farða sem passar þinni húðtegund
2. Vítamín:
C vítamín gerir gæfumuninn og hjálpar til við collagen framleiðslu stelpur!
3. Bronzer:
Settu smá bronzer á andlitið eins og t.d. frá Sensai eða St. Tropez. Sniðugt að blanda því saman við farðann
4. Olía
Olía út á salatið er málið. Settu frekar olíu út á salatið en gömlu góðu sósuna. Þegar olía er sett út á salat á líkaminn auðveldara með að taka inn E vítamín úr olíunni sem er súper gott fyrir húðina.
5. Förðunin:
Passaðu förðunina því rangir litir geta gert þig ellilegri. Það þarf ekki að vera að sömu litirnir passi þér í dag og þessir sem pössuðu þér í menntaskóla. Fáðu ráðgjöf hjá fagaðila.
6. Hrukkuvænn matur:
Prótein skiptir miklu máli fyrir húðina ekki sleppa því. Fiskur, egg, kjúklingur, baunir og steik er klárlega hrukkuvænn matur.
7. Hendurnar:
Passaðu hendurnar því þær koma oft upp um mann. Vertu dugleg að setja handáburð og krem á hendurnar. Við mælum með Clinique even better handáburðinum sem lagar dökka öldrunarbletti á handarbökunum.
8. Brostu :-)
Njótið dagsins
Eva Dögg Tíska.is
Tengt efni: