Hvort sem þú ert að setja avæokadó á brauðið þitt eða að henda í með smoothie dagsins, þá fer ekki á milli mála að avókadó er búinn að stimpla sig rækilega inn hjá okkur og við virðumst ekki fá nóg af honum. En hvernig væri að prufa að setja hann í andlitið? Oft á tíðum þá erum við búnar að kaupa okkur rándýra andlitsmaska sem kostar okkur hálfan handlegg og langt upp að öxl! Hvernig væri að gera sinn eigin maska og spara aðeins?
#1 Blandið öllum hráefnum vel saman.
#2 Setjið strax á hreina húð í andlitinu og forðist að maskinn berist í augun.
#3 Látið sitja í 10-15 mínútur.
#4 Hreinsið vel af með volgu vatni.
Avókadó er pakkaður af próteini og náttúrulegri olíu, sem gerir hann fullkomin fyrir aukin raka og teygjanleika fyrir húðina. Sýran í grísku jógúrti aðstoðar þig við að hreinsa í dauðar húðfrumur. Kókósolían hreinsar og endurnærir húðina á meðan matcha duftið (grænt te) detoxar og hreinsar út öll óhreinindi og kemur í veg fyrir ótímabæra öldrun húðarinnar.