Ég hef reynt ýmislegt hérna í Suður Asíu uppá mitt einsdæmi þar sem ekki er til hárvörur sem ég var von að nota í hárið heima eða gat verslað hjá henni Grétu minni í Modus hárstofu. Ef þið hafið misst af „kaffi“ fyrir hárið þá getur þú smellt hér til að kanna það. En vindum okkur í „uppskriftirnar“ fyrir þurrsjampó.
Blandaðu einn á móti einum af maísenamjöl og ósætu kakó. Ef þú ert með frekar dökkt hár bættu þá meira kakó útí blönduna til að tóna við hárið þitt.
Fyrir rautt hár, blanda saman mjölið og kanil, einn á móti einum. Hárið á eftir að lykta dásamlega.
Fyrir ykkur sem eru ljóshærðar og jafnvel þær gráhærðu líka, blandið saman maísenamjöli og einum til tveimur dropum af góðri olíu með ykkar uppáhalds lykt.
Það er mjög fínt að setja blönduna í saltstauk til að strá í rótina, en þú getur líka notað góðan förðunarbursta til að dumpa yfir hárið.
Ef þú nennir ekki að standa í svona hárblöndu veseni fyrir þurrsjampó og þráast við að bíða eftir næsta hárþvottadegi, tékkaðu þá á þessum hárgreiðslum hér.
Mundu eftir okkur á Facebook