Vissulega eru handarkrikar okkar sá staður líkamans sem svitnar mest en það eru aðrir staðir sem þarfnast líka hjálpar og þá ekki eingöngu vegna svita.
Þegar lærin nuddast saman myndast gjarnan mikill sviti, roði og óþægilegur núningur. Til að koma í veg fyrir það skaltu renna svitalyktareyði yfir svæðið innan á lærunum.
Það getur verið afar óþægilegt í ræktinni og við hlaup þegar svitinn rennur niður andlitið og hnakkann. Til að losna við þetta geturðu nuddað svitalyktareyði við hárlínuna og niður hálsinn aftur á hnakka.
Margir íþróttamenn segja þessa aðferð algjörlega ómissandi.
Konur þekkja það vel að þegar þeim verður heitt þá svitna þær mikið undir brjóstum. Til að draga úr því má nota svitalyktareyði undir brjóstin, en betra er að nota sprey í þeim tilgangi.