„Húðin er orðin þurr og þarf ekki á meiri þurrki að halda“, segir Ragna Fossberg förðunarmeistari, sem gefur lesendum Lifðu núna ráð um snyrtingu. Ragna mælir með að nota léttan kremkendan farða fyrir húð sem er farin að eldast. Og liturinn skiptir miklu máli. Þessi farði eru kallaður BB farði í snyrtivörubúðunum.
„Við viljum að liturinn sé upplífgandi, ekki grár og niðurdrepandi“, segir Ragna. „Við viljum halda ferskleika í húðinni“. Hún segir ágætt að taka einum tóni dekkri farða, en húðlitinn og ekki megi gleyma að bera farða niður á hálsinn. „Það er ekkert jafn ljótt og meik-gríma“ heldur hún áfram, „þykkur farði sem endar á kjálkabeini. Höfuðið er þá eins og það tilheyri öðrum líkama“.
Farðinn þarf sum sé að ná niður á hálsinn. „ En ef menn eiga mjúkt brúnkukrem ekki of dökkt, til dæmis St. Tropez“, segir Ragna, „er frábært að setja það á sig undir meik og niður á hálsinn svona tvisvar í viku. Þá er hægt að losna við að farðinn fari í fötin . Brúnkukrem smitar ekki út frá sér en gefur fyllingu í húðlitinn.