Snyrtivörur duga oft í langan tíma og þetta eru að sjálfsögðu ekki útgjöld sem maður þarf að punga út í einu. Ég ákvað að setja saman hér fyrir neðan "hefðbundna" snyrtibuddu en að sjálfsögðu rokkar verðmæti hjá hverjum og einum og eflaust til miklu dýrari og ódýrari vörur. Þetta er bara til viðmiðunar.
Ég veit það fyrir víst að ég dreg frekar úr í þessum lista frekar en hitt en oft á tíðum eru konur með fleiri en einn varalit og einn gloss nú svo eru margar með nokkrar tegundur af augnskuggum, augnskugga burstum og jafnvel fínan kinnalitabursta en hér tel ég þetta ekki upp. Við erum bara að tala um grunninn og eina snyrtibuddu, sumir eiga tvær!
Ég tók meðalverð í Hagkaup og Lyfju af vörum sem ég sjálf þekki vel og veit að vinkonur mínar nota.
En við vitum allar hvað snyrtivörur gera mikið fyrir okkur og líklega er snyrtibuddan mest notaðasta taskan á heimilinu. Einnig er þessi taska sú sem er aldrei nógu stór!
Pössum hana vel!!
Grein af vef tiska.is