Fara í efni

Afar smart pínu lítil íbúð í New York

Að kaupa sér íbúð í New York getur verið fjarlægur draumur alveg eins og hér á Íslandi, án þess að þurfa að lifa á núðlusúpum úr Krónunni næstu 25 árin!
Glæsilegt í alla staði
Glæsilegt í alla staði

Að kaupa sér íbúð í New York getur verið fjarlægur draumur alveg eins og hér á Íslandi, án þess að þurfa að lifa á núðlusúpum úr Krónunni næstu 25 árin! 

En það er hægt að finna sér gullmola eins og þessa litlu gull fallegu íbúð í New York þá lætur þú það virka.  Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera vel skipulagða íbúð úr aðeins 26 fermetrum eins og þessi litla íbúð hefur verið gerð.  Hver meter er vel skipulagður og frábær hugmynd með rúmið, eitthvað sem við sjáum ekki hér á landi.

hh

Þrátt fyrir litla fermetra þá er íbúðin mjög björt í yfirlitum.

ff

Tvíbreitt rúmið fellur niður og sófinn verður undir.  Hér kemst maður ekki upp með óumbúið rúm.

ff

Hver fermetri er vel nýttur í þessu litla rými.

ff

Antik húsgögn í bland við „vintage“ gerir þetta mjög smekklegt og smart.

ff

Það er einver dásemd yfir þessari stóru mynd.

ff

Lítið eldhúsborð fellur úr skápnum.  Efast um að hér sé haldið stórt matarboð.

fff

Litla íbúðin er með hátt til lofts, opin og björt þrátt fyrir að vera aðeins 26 fermetrar.

ff

Það er eins gott að hafa skipulagið í lagi þegar  kemur að eldhúsinu. 

bb

dd

Þrátt fyrir fáa fermetra þá er íbúðin með þennan fallega bakgarð sem bætir fyrir plássleysi á sumrin.  Það er allt hægt ef maður hefur skiplagsvit eða fær aðstoð til að hanna svona lítið rými. 

Bestu kveðjur frá Brunei,

Karólína

#heilsutorg #heimaerbest