Þú getur haft áhrif á fjölskyldumeðlimi og vini með að "smita" þá á jákvæðan hátt með þinni hreyfigleði. Þá er um að gera að velja hreyfingu og athafnir sem þið getið gert saman og haft það skemmtilegt. Gott er að takmarka skjátíma við ákveðinn hámarkstíma á dag. Hreyfihvatning skiptir miklu máli og sömuleiðis jákvæð umhverfisáhrif þegar fólk velur heilsusamlegan lífsstíl.
Að auka hreyfingu er venjumyndun sem getur þurft ákveðni og smávegis af tíma (t.d. 30-60 mínútur á dag). Umbunin sem vænta má er betri líðan til lengri tíma og flestir finna mun á sér tiltölulega fljótt. Það er jákvætt að styðja við hreyfingu með hóli og heilsugjöfum sem efla hreyfingu frekar en fæðu, þó mörgum hætti til að verðlauna börn með sætindum.
-Halda fjölskyldufund og komast að samkomulagi um hvað flestir vilja gera til að hreyfa sig saman og gera hreyfi-stundaskrá (t.d. ákveða stað og stund til að ganga í kringum Tjörnina, fara í sund, ganga upp næsta fell/fjall)
- Byrja hægt, t.d. göngutúr kl.17-17:30 tvisvar í viku á mánudögum og fimmtudögum
- Fara í hjólreiðatúr á laugardögum og/eða sund á sunnudögum
- Fjölskyldumeðlimir setji sér áætlun til að auka daglega hreyfingu og hvetji hvert annað til dáða
-Taka eftir smáárangri og hæla framtakinu
- Skoða hvernig öll virkni skiptir máli
- Hafa uppskeruhátíð miðað við árangur
Íþróttafatnað og skó
Handbolta, fótbolta
Skrefmæli
Handlóð
Yoga disk, teygjur
Líkamsræktarkort
Heimild: heil.is