Þemað í þessum pistil eru fram- og afturstigsæfingar sem er frábær leið til þess að þjálfa upp læri og rass, án þess að þurfa tæki og tól. Þú getur framkvæmt æfingarnar heima í stofu, í ferðalaginu og í raun bara hvar sem þér dettur í hug.
Þessar æfingar eru mun einfaldari tæknilega en hnébeygjan og því tilvaldar fyrir byrjendur sem þurfa að byggja upp grunnstyrk, stöðugleika og jafnvægi.
Að sjálfsögðu er hægt að auka erfiðleikastig æfinganna með því að bæta við lóðum eða stöng. Hérna eru nokkrar útfærslur af framstigi/hliðarstigi/afturstigi.
Góð byrjunaræfing fyrir þá sem hafa ekki styrk og jafnvægi í erfiðari útfærslur. Ef erfitt reynist að halda jafnvægi, þá er hægt að nota aðra höndina í að styðja sig við. . . LESA MEIRA
Grein frá Faglegri Fjarþjálfun.